Eins og ný kjélling

Æ já. Nú er ég sko loksins byrjuð að færa orð mín til bókar á nýjan leik. Í dálítinn tíma hefur mig ekki langað að deila mér með ykkur. En hví ekki - hví ekki að leyfa ykkur að njóta mín. Ég vona að einhverjir komi til með að lesa um líf mitt og langanir - ég elska þegar ég fæ að deila með ykkur einhverju sem skiptir aðra máli.

Annars var ég að fá gallabuxurnar í dag. Þetta eru svona ÐÍ GALLABUXUR. Það var tekið mót af mér í Atomic Jeans í London í sumar - var klædd í eitthvað latex líki í svona 30 mínútur og úr því varð eins konar afsteypa af neðri hlutanum af mér. Svo var mótið tilbúið og í framhaldinu sérsaumaðar á mig gallabuxur sem fitta algjörlega á mitt boddí. Ég var reyndar últra stressuð að þeir myndu ekki alveg passa, því línurnar breytast á ótrúlega skömmum tíma í minni sveit. En HJÚKK - þær smella eins og flís við rass. Mér líður eins og ég sé ný kjélling. Er að hugsa um að sýna mig í þeim á morgun - hvort ég verð í pink-naríum innan klæða er mitt að vita.... :) Held að mamma verði soldið abbó að sjá þessar buxur - vona að hún éti þær ekki þegar hún sér þær.


Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband